Eiríkur Hauksson - Ég Les Í Lófa Þínum Lyrics

Ég les í lófa þínum, leyndarmálið góða 
Ég veit það nú, ég veit og skil 
Það er svo ótalmargt sem ætla ég að bjóða 
Já, betra líf, með ást og yl 

Í lófa þínum les ég það 
Að lífið geti kennt mér að 
Ég fæ aldrei nóg 
Ég vil fara frjáls með þér 
Og fljúga yfir land og sjó 

Það er svo augljóst nú að allir draumar rætast 
Við höldum frjáls, um höf og lönd
Um lífið leikum við og lófar okkar mætast 
Þá leiðumst við 
Já, hönd í hönd 

Í lófa þínum les ég það 
Að lífið geti kennt mér að 
Ég fæ aldrei nóg 
Ég vil fara frjáls með þér 
Og fljúga yfir land og sjó 

Ég ætla að fara alla leið 
Með ást á móti sorg og neyð 
Ég fæ aldrei nóg 
Ég vil fara frjáls með þér 
Og fljúga yfir land og sjó 

Uh... Í lófa þínum les ég það 
Að lífið geti kennt mér að 
Ég fæ aldrei nóg 
Ég vil fara frjáls með þér 
Og fljúga yfir land og sjó 

Ég ætla að fara alla leið 
Með ást á móti sorg og neyð 
Ég fæ aldrei nóg 
Ég vil fara frjáls með þér 
Og fljúga yfir land og sjó